Laus störf við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskólakennara/ íþróttakennara vantar við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fyrir næsta skólaár. Einnig vantar kennara í 30% stöðu í hönnun og smíði.
Leitað er að kennurum sem er reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
- Jákvæðni og áhugi á að vinna með börnum.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
Nánari upplýsingar gefur Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eya@skolar.fjardabyggd.is