Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með sambærilega menntun.
Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og með ART.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 18. mars 2019.
Um er að ræða 100% starf tímabundið vegna veikinda.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun er áskilin. *
Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði og faglegur metnaður.
Hæfni og áhugi á að vinna í hóp.
Reynsla af starfi með börnum.
Ábyrgð og stundvísi.
Góð íslenskukunnátta.
* Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 14. mars 2019.
Starfslýsing leikskólakennara - Starfslýsing starfsmanns á leikskóla
Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474 1257 / 860 3176 eða gegnum netfangið: lisalotta@skolar.fjardabyggd.is