Leikskólinn Lyngholt á Reyðarfirði auglýsir eftir leikskólakennara til starfa við skólann.
Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Lyngholt er skóli á grænni grein og unnið er eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 100 % stöður
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
• Reynsla af starfi með börnum
• Ábyrgð og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2019.
Starfslýsing leikskólakennara
Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.