mobile navigation trigger mobile search trigger
06.08.2020

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennurum

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennurum. Leikskólinn er átta deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Leikskólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. 
 
Nánari upplýsingar gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1460 og 847-8232 eða á halla@skolar.fjardabyggd.is  og Sigurveig H. Dagbjartsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 477-1462 eða á sigurveighd@skolar.fjardabyggd.is

Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2020.

Starfslýsing.
 
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi umsækjanda.

Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins.