mobile navigation trigger mobile search trigger
01.06.2020

Ljósmyndasamkeppni Fjarðabyggðar 2020

Sveitarfélagið Fjarðabyggð efnir til ljósmyndasamkeppni sem ber nafnið „Fjarðabyggð með mínum augum“. Íbúar eru hvattir til að taka þátt og senda okkur myndir á netfangið myndasamkeppni2020@gmail.com

Leitað er eftir myndum í fjórum flokkum:

  • Staðarmyndir, götumyndir, hús, yfirlits myndir.
  • Landslag, gróður, náttúra Fjarðabyggðar.
  • Mannlíf, atvinnulíf og íþróttir.
  • Dýralíf.

Góðir vinningar eru í boði fyrir bestu myndirnar heilt yfir:

  • Fyrsti vinningur: 50.000
  • Annar vinningur: 30.000
  • Þriðji vinningur: 20.000

Auk þess verða veitt verðlaun fyrir bestu myndina í hverjum flokki að upphæð 15.000 kr.

Allir sem eiga eða hafa aðgang að myndavél eða dróna eru hvattir til að taka þátt í þessari skemmtilegu samkeppni.

Reglurnar er einfaldar:

  1. Ljósmyndin skal vera tekið í Fjarðabyggð.
  2. Sá sem sendir inn myndefnið skal vera eigandi þess.
  3. Þegar sendar eru inn myndir þarf að senda inn upplýsingar um sendandann: Nafn, heimilisfang, síma og netfang.
  4. Með þátttöku í samkeppninni veita þátttakendur leyfi til þess að myndefnið verði notað sem kynningarefni fyrir sveitarfélagið Fjarðabyggð.
  5. Myndefnið þarf að vera í þannig stærð að hægt verði að prenta það út minnst 10 x 15 cm. 240ppi.
  6. Hver þátttakandi getur sent mest sent inn 10 ljósmyndir. 

Lokadagur keppninnar er á miðnætti þann 30. september 2020. Sérvalinn dómnefnd fer yfir myndirnar og tilkynnir sigurvegara þann 20. október 2020.

Allar myndirnar verða til sýnis að keppninni lokið á heimasíðu Fjarðabyggðar

Myndum skal skila á netfangið myndasamkeppni2020@gmail.com