mobile navigation trigger mobile search trigger
22.06.2021

Nýr skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Erla J. S. Steingrímsdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla.  Erla hefur starfað sem kennari við Hvassaleitisskóla og Varmárskóla undanfarin sex ár og starfaði þar áður við leikskólann Reykjaholt.

Nýr skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Erla er með BA próf í bókmenntum og íslensku frá Háskóla Íslands, MEd. nám í menntunarfræðum frá Háskóla Akureyrar og diplómanám í Stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands auk þess að vera með sveinspróf í framreiðsluiðn. Við hlið hennar sem aðstoðarskólastjóri, mun áfram starfa okkar farsæli Jónas Eggert Ólafsson.