Vegna viðhaldsvinnu hjá Landsneti verður rafmagnslaust við Fáskrúðsfjörð og norður á Berunes, að innsveit Fáskrúðsfjarðar undanskilinni, aðfaranótt 16. apríl frá miðnætti og til kl 07:00. Fyrst stutt rafmagnsleysi um miðnætti en algjört rafmagnsleysi áætlað frá kl 03:00 - 07:00.
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Austurlandi í síma 528 9790.