mobile navigation trigger mobile search trigger
21.02.2019

Samningur við Tryggingamiðstöðina undirritaður

Í vikunni var undirritaður nýr samningur um tryggingar Fjarðabyggðar við Tryggingamiðstöðin, en félagið var lægstbjóðandi í útboði á tryggingum sveitarfélagsins sem fór fram í desember 2018.

Samningur við Tryggingamiðstöðina undirritaður
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri og Viðar Guðmundsson tryggingaráðgjafi tókust í hendur eftir undirritun samningsins.

Samningurinn gildir næstu þrjú árin og vænst er farsæls og góðs samtarfs af hálfu beggja aðila um tryggingavernd sveitarfélagsins.  Aðilar leggja áherslu á mikilvægi forvarna í starfsemi sveitarfélagsins og munu vinna náið að því markmiði að fækka slysum og tjónum.