Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar auglýsir eftir skólaliða. Í skólanum eru 95 nemendur í 1.-10. bekk.
Starf skólaliða felst í:
- þrifum og tiltekt
- gæslu nemendaúti í frímínútum
- leiðsögn og umsjón með nemendum á göngum og matsal
- stuðningi við starf í bekkjum
- fylgd í íþróttir og sund í forföllum
- öðrum stuðningi við skólastarf að beiðni stjórnenda
Reynsla og æskileg hæfni:
- ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
- frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- ánægja af starfi með börnum
- snyrtimennska, dugnaður og ábyrgðarkennd
- kostur er að viðkomandi hafi reynslu af starfi með börnum
Um er að ræða u.þ.b. 80% starfshlutfall. Vinnurtími er frá 9:30- 16:00
Starfslýsing - Stuðningsfulltrúi I
Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2018.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri og Guðfinna Kristjánsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 475-9020. Hægt er að senda tölvupóst á: eya@skolar.fjardabyggd.is eða gudfinna@skolar.fjardabyggd.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um rafrænt á heimasíðu Fjarðabyggðar. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá.