mobile navigation trigger mobile search trigger
03.04.2020

Staða aðstoðarskólastjóra Eskifjarðarskóla

Staða aðstoðarskólastjóra Eskifjarðarskóla

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Eskifjarðarskóla. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða faglegt starf í skólanum. Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Eskifjarðarskóla stunda um 150 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða við mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans.
  • Aðstoða við faglega forystu í skónámskrárvinnu og skólaþróunarverkefnum.
  • Bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í samstarfi við skólastjóra.
  • Vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Staðgengill skólastjóra.

Menntun og hæfniskröfur:        

  • Leyfisbréf sem kennari.
  • Kennslureynsla í grunnskóla.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun og stjórnunarreynsla.
  • Þekking í upplýsinga- og tæknimennt.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og samskiptahæfni.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Starfslýsing aðstoðarskólastjóra

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.grunnesk.is. Nánari upplýsingar veitir Ásta Stefanía Svavarsdóttir í síma 863 5681 eða á netfangið astasv@skolar.fjardabyggd.is      

Staðan er laus frá 1. ágúst 2020. Launakjör eru samkvæmt samningi Samband íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér