mobile navigation trigger mobile search trigger
04.06.2019

Staða aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Staða aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarða

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar skólaárið 2019-2020. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í að stjórna og leiða faglegt starf í skólanum. Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar stunda um 100 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Helstu verkefni:


• Umsjón með sérkennslu og kennslu innflytjendabarna
• Aðstoð við þróunar- og námskrárvinnu
• Aðstoð við daglega stjórnun skólans
Menntun og hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa starfsheitið grunnskólakennari
• Viðbótarmenntun og stjórnunarreynsla á grunnskólastigi er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði
Staðan er laus frá 1. ágúst 2019. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið

Starfslýsing aðstoðarskólastjóri grunnskóla

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.fask.is. Nánari upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir í síma 867 - 6177 eða á netfangið eya@skolar.fjardabyggd.is 

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér