mobile navigation trigger mobile search trigger
22.03.2021

Staða deildarstjóra við leikskólann Eyrarvelli

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir deildarstjóra. Leikskólinn er sjö deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Skólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

 Starfslýsing leikskólakennara.pdf

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Nánari upplýsingar gefur, Halla Höskuldsdóttir, skólastjóri í síma 477-1485, halla@skolar.fjardabyggd.is og Sigurveig Halldóra Dagbjartsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 477-1485 eða sigurveighd@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. ágúst 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér