mobile navigation trigger mobile search trigger
25.05.2021

Staða deildarstjóra við leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir deildarstjórum. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöður.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

 Starfslýsing deildarstjóri leikskóla I.pdf

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknir og umsóknarfrestur

Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 10. júlí

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér