mobile navigation trigger mobile search trigger
05.12.2018

Starfsfólk óskast í frekari liðveislu á Reyðarfirði.

Starfsfólk óskast í frekari liðveislu á Reyðarfirði.

Um er að ræða stuðning við fatlað fólk við allar athafnir daglegs lífs með því markmiði að það geti lifað eðlilegu lífi og tekið þátt í samfélaginu. Starfið er í vaktavinnu.

Helstu verkefni:
• Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
• Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.

Hæfniskröfur:
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks, rík þjónustulund, jákvæðni, framtakssemi og
samviskusemi.

Viðkomandi verður að hafa hreint sakavottorð og vera orðinn 18 ára.

Um er að ræða 100 % og 60% starf

Starfslýsing stuðningsfulltrúi í frekari liðveislu.

Frekari upplýsingar veitir Björn Ágúst Olsen Sigurðsson. Forstöðuþroskaþjálfi í síma 897-0916, eða á bjorn.olsen@fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 21. desember.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðbyggðar með því að smella hér.