Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsmönnum í búsetuþjónustu í Fjarðabyggð.
Um er að ræða starf í heimaþjónustu þar sem veittur er félagslegur stuðningur og persónuleg aðstoð við notendur þjónustunnar.
Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
• Reynsla sem nýtist í starfi er æskileg.
• Þjónustulund, frumkvæði og jákvæðni í starfi.
• Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Framtaksemi, sjálfstæði og samviskusemi.
• Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri búsetuþjónustu, Guðrún Lilja Magnúsdóttir –gudrun.magnusdottir@fjardabyggd.is.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til 25.ágúst nk.
Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.