Fjarðabyggð auglýsir eftir Starfsmönnum í íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna sem sækja íþróttamiðstöðvar á eigin vegum eða á vegum skóla. Rík áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, sveigjanleika og þjónustulund.
Helstu verkefni:
- Eftirlit og gæsla með notendum íþróttamiðstöðvar.
- Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum þar sem reknar eru sundlaugar
- Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu.
- Almenn afgreiðsla.
- Allar almennar ræstingar í Íþróttamiðstöðinni
- Þvottur á handklæðum og sundfatnaði.
- Taka á móti og leysa úr/koma áleiðis öllum ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af þjónustustörfum.
- Tungumálakunnátta til að geta þjónustað erlenda gesti.
- Námskeið í skyndihjálp.
- Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og þjónustulund
Starfslýsing starfsmaður íþróttamannvirkis.pdf
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Allar frekari upplýsingar veitir Ásdís Sigurðardóttir , stjórnandi íþrótta- og tómstundamála, í síma 898-3310 eða á netfanginu asdis.sigurdardottir@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2021. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf þann 1. maí næstkomandi.
Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar https://starf.fjardabyggd.is/storf/ ásamt ferilsskrá.