mobile navigation trigger mobile search trigger
14.05.2019

Stuðningsfulltrúi í Grunnskóla Reyðarfjarðar

Um er að ræða u.þ.b. 60% starf sem felur í sér stuðning við nemendur á mið- og unglingastigi. Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara hverju sinni og er til aðstoðar við nemendur inni í bekk og í öðru skólastarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.

Starfslýsing - Stuðningsfulltrúi I


Í skólanum eru um 210 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði af orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að stuðningsfulltrúa sem eru reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar.

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2019.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is í síma 474-1247.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér