mobile navigation trigger mobile search trigger
25.01.2021

Stuðningsfulltrúi við Leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir stuðningsfulltrúa með nemanda. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100% stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Þroska- /iðjuþjálfa menntun eða hafa lokið grunnnámi fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilega menntun.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Viðkomandi verður að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningi sveitarfélgsins við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar. 

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is  

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is