mobile navigation trigger mobile search trigger
07.05.2020

Sumarafleysingar í búsetuþjónustu á Reyðarfirði

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar  og framtíðarstörf í búsetuþjónustu á Reyðarfirði. Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu á heimilum fatlaðs fólks.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
  • Æskilegt er að starfsmenn séu með bílpróf.

Við bjóðum upp á:

  • Sveigjanlegan vinnutíma.
  • Starfshlutfall frá 40-80% eða eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 20. maí.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu, Anna H. Árnadóttir – anna.h.arnadottir@fjardabyggd.is  – 470-9000.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér