Þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar auglýsir sumarstarf verkamanns á aldrinum 18-25 ára laust til umsóknar. Verkamaður í þjónustumiðstöð starfar undir stjórn bæjarverkstjóra. Hann vinnur að hefðbundnum verkefnum þjónustumiðstöðva ásamt ýmsum umhverfisverkefnum sem snúa að fegrun hafnarsvæða, hvort sem um er að ræða snyrtingu gróðurs eða öðrum umhverfisverkefnum, ásamt ýmsum störfum er til falla á höfnunum.
Hæfnis- og starfsmarkmið
- Stundvísi og samviskusemi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfslýsing - Sumarstaf verkamanns
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí. 2020.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Ásgeir Karlsson gunnar.a@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðbyggðar með því að smella hér