Laus er til umsóknar staða sumarstarfsmanns við afleysingar í þjónustuíbúðum aldraðra í Neskaupsstað. Um 100% starf er að ræða.
Í starfinu felst meðal annars:
- Umsjón með hádegismat sem sendur er frá eldhúsi HSA
- Innlit til íbúa eftir þörfum
- Félagsstarf með íbúum
- Kaffisala
- Létt leikfimi
- Heimaþjónusta við íbúa
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæði í faglegum vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Guðrún Lilja Magnúsdóttir í síma 861 3074 og í gegnum netfangið gudrun.magnusdottir@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2019
Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér