mobile navigation trigger mobile search trigger
15.01.2021

Þjónusta bókasafna í Fjarðabyggð

Í samræmi við ákvörðun heilbrigðisráðherra og sóttvarnarlæknis verður þjónustu bókasafna Fjarðabyggðar sem hér segir:

Frá og með 13. janúar til 17. febrúar verður viðskiptavinum almenningsbókasafnanna boðið upp á að hafa samband við bókasöfnin og panta bækur. Afhending og skil bóka fer eftir samkomulagi við forstöðumenn.

Ástæðan fyrir þessum breytingum á þjónustu er að bókasöfnin eru staðsett í grunnskólabyggingum Fjarðabyggðar og hefur byggingunum verið skipt niður í sóttvarnarhólf þar sem ekki er leyfður samgangur á milli hólfa og utanaðkomandi bannaður aðgangur. Þetta er gert til þess að fyrirbyggja smit. Almenningi er þess vegna boðið upp á að hafa samband við söfnin, panta bækur eða skila, og að fá gögnin afgreidd eftir samkomulagi við forstöðumann.

Viðskiptavinum er bent á að hafa samband í síma eða með tölvupósti.

Bókasafnið í Neskaupstað:    Sími 477 1521, netfang: boknes@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Eskifirði:          Sími 476 1586, netfang: bokesk@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Reyðarfirði:      Sími 474 1366, netfang: bokrey@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Fáskrúðsfirði:   Sími 475 9016, netfang: bokfas@fjardabyggd.is

Bókasafnið á Stöðvarfirði:     Sími 475 9017, netfang: boksto@fjardabyggd.is

Bókasafnið í Breiðdal:           Sími 470 5574, netfang: bokbre@fjardabyggd.is

Einnig viljum við minna á facebook síðu bókasafnanna, þar sem ýmsan fróðleik er að finna.

Ef breytingar verða á fyrirkomulaginu verður það auglýst á heimasíðu Fjarðabyggðar.