mobile navigation trigger mobile search trigger
31.10.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 31. október

Tveir eru nú í einangrun á Austurlandi vegna COVID smits. Aðgerðastjórn vekur athygli á að nýjar reglur um takmarkanir á skólahaldi í kjölfar hertra sóttvarnaregla er tóku gildi á miðnætti munu kynntar í næstu viku. Eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að fylgjast með upplýsingum á heimasíðu sveitarfélaganna á svæðinu vegna þessa.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 31. október

Hertar reglur frá miðnætti gilda til 17. nóvember næstkomandi og verður ástandið þá vonandi orðið annað og betra á landinu. 

Gerum þetta saman sem fyrr.