Umhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd skal móta stefnu bæjarins í umhverfis- og loftlagsmálum, gróður og ásýndarmálum, skipulags- og byggingarmálum, samgöngu- og umferðaröryggismálum og málefnum tengdum meðferð úrgangs ásamt því sem hún fer með náttúruverndarmál. Nefndin skal taka ákvarðanir og gera tillögur til bæjarráðs um málefni á verksviði sínu. Jafnframt hefur nefndin eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun á verksviði hennar sé fylgt. Þá fer nefndin með önnur þau verkefni sem bæjarráð ákveður.