FJARÐABYGGÐARHAFNIR
Hafnarstjórn Fjarðabyggðar hefur umsjón með rekstri hafnarsjóðs og allri uppbyggingu á athafnasvæðum hafna. Leiðarljós hafnarstjórnar er að viðskiptavinum Fjarðabyggðarhafna sé veitt framúrskarandi þjónusta á öllum sviðum hafnarstarfsemi. Hlutverk Fjarðabyggðarhafna er að þjónusta fyrirtæki með hafntengda starfsemi, sjá um samskipti við skip eða umboðsaðila þeirra, framkvæmd hafnsögu, aðstoð með dráttarbát, vigtun sjávarfangs og annað sem fellur undir hafnsækna starfsemi. Um Fjarðabyggðarhafnir fer mesti landaði sjávarafli á landsvísu. Hafnarstarfsemin er að sama skapi víðfeðm og dreifist hún á sjö hafnir þ.e. hafnirnar á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Breiðdalsvík ásamt Mjóeyrarhöfn. Með tilkomu Mjóeyrarhafnar hefur vægi vöruflutninga aukist, en áhersla var áður aðallega á þjónustu við sjávarútveg.
Hjá Fjarðabyggðarhöfnum starfa tíu starfsmenn í fullu starfi og starfsmaður í hlutastarfi við Mjóeyrarhöfn. Á Stöðvarfirði sér starfsmaður þjónustumiðstöðvar um höfnina. Starfsmenn hverrar starfsstöðvar hafa umsjón með daglegum rekstri. Vinnutími þeirra er frá 8-17 virka daga, en auk þes eru starfsmenn á bakvöktum sem sinna útköllum utan hefðbundins vinnutíma. Starfsmenn Fjarðabyggðarhafna sjá um að veita hafnsögu- og dráttarbátaþjónustu, auk þess sem þeir sinna tilfallandi störfum hver á sinni starfsstöð. Fjarðabyggðarhafnir mynda sjálfstæða rekstrareiningu innan stofnanakerfis sveitarfélagsins. Framkvæmdastjóri hafnanna starfar með hafnarstjórn en fundir stjórnar eru haldnir a.m.k. einu sinni í mánuði.