Í starfinu felst að aðstoða og leysa af í Skólamötuneyti Fáskrúðsfjarðar. Rík áhersla er lögð á góða mætingu, góð samskipti og sjálfstæð vinnubrögð.
Starfsmaður vinnur við ýmis verk sem viðkoma eldhúsi, hefur umsjón með verkefnum sem yfirmenn hans segja til um samkvæmt starfslýsingu.
Hæfniskröfur:
- Þekking og reynsla af matseld og næringu.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- íslensku kunnátta
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Gott vinnusiðferði
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Eggertsdóttir leikskólastýra, í síma 475-9055 / 8683297 eða á netfanginu astae@skolar.fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2021. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2021
Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar ásamt ferilsskrá og kynningarbréfi.