mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2020

Deildarstjóri við Leikskólann Kærabæ

Leikskólinn Kæribær auglýsir eftir deildarstjóra. Leikskólinn er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Skólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöðu

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. 

Nánari upplýsingar gefur Ásta Eggertsdóttir, leikskólastjóri í síma 475-9055 eða astae@skolar.fjardabyggd.is

Staðan er laus frá 10. ágúst 2020. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til17. maí

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér