mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2020

Deildarstjórar við Leikskólann Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir deildarstjórum. Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum Grænfána skóli og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöður.
 
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing deildarstjóri leikskóla I

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. 
 
Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 474-1257/860-3176 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is eða Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 474-1257 eða á gerdur@skolar.fjardabyggd.is

Staðan er laus frá 15. ágúst 2020. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 17. maí 

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðbyggðar með því að smella hér
 
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.