Laust er til umsóknar 100% staða karlkyns starfsmanns við Íþróttamiðstöð Eskifjarðar. Starfið er laust frá og með áramótum. Um framtíðarstarf er að ræða.
Í starfinu felst m.a.:
Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
• Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
• Þrif
Hæfniskröfur:
Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og skipulagshæfni
Hæfni í mannlegum samskiptum
Starfslýsing sundlaugarvarðar í Sundlaug Eskifjarðar.
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2018
Frekari upplýsingar um starfið gefur Jóhann R. Benediktsson forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eskifjarðar í síma 862 0363 og í gegnum netfangið johann.r.benediktsson@fjardabyggd.is
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is