mobile navigation trigger mobile search trigger
11.05.2021

Kennarar við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Eftirtaldar kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar eru lausar til umsóknar fyrir skólaárið 2021 - 2022.
• Almenn bekkjarkennsla
• Umsjónarkennari á yngsta stigi
• Stærðfræðikennsla á unglingastigi


Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
• Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
• Samskipta og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og faglegur metnaður.
• Ábyrgð í starfi og stundvísi.
• Skipulagshæfileikar.
• Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing grunnskólakennara.pdf

Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar.

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí nk. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Árnadóttir skólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is í síma 474-1247.

Sótt er um ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér