mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2020

Kennarastöður við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Stöðurnar eru íþróttakennarastaða, umsjónarkennarastaða og kennsla í hönnun og smíði

Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans. Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar stunda um 100 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing grunnskólakennari 

Starfslýsing íþrótta- og sundkennara

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til 17. maí 2020.

Upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir, skólastjóri eya@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 475-9025.

Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér