mobile navigation trigger mobile search trigger
30.04.2020

Kennarastöður við Nesskóla

Lausar eru til umsóknar kennarastöður við  Nesskóla. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks.  Skólinn er skipaður góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi. Við Nesskóla stunda um 230 nemendur nám. Skólinn er staðsettur í glæsilegu húsnæði þar sem einnig eru til húsa bókasafn staðarins og tónlistarskóli. Leitað er eftir kennurum til að sinna umsjónarkennslu á yngsta- og miðstigi skólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Góð færni í íslensku, rituðu og töluðu máli.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar

Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans; www.nesskoli.is. Nánari upplýsingar veitir Eysteinn Þór Kristinsson í síma 477 1124 eða á netfangið eysteinn@skolar.fjardabyggd.is.     

Staðan er laus frá 1. ágúst 2020. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 20. maí

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér