mobile navigation trigger mobile search trigger
11.06.2019

Kennari við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Staða kennara við Grunnskóla Reyðarfjarðar er laus til umsóknar.

Starfshlutfall er 100% og um er að ræða kennslu á unglingastigi, m.a. dönsku og stærðfræði ásamt umsjónarkennslu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Starfslýsing grunnskólakennari

Í skólanum eru um 200 börn í 1. – 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði af orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti.  Leitað er að kennara sem eru reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar.

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingarmöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2019. 

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin 

Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og í síma 474-1247/8631247.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér