Laus er til umsóknar 100% staða starfsmanns við Íþróttamiðstöð Eskifjarðar. Vegna eðli starfsins er auglýst eftir kvenkyns starfsmanni. Um er að ræða framtíðarstarf. Best væri að starfsmaðurinn gæti hafið störf sem fyrst.
Í starfinu felst meðal annars:
• Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
• Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
• Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
• Þrif
Hæfniskröfur:
Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Frumkvæði og skipulagshæfni
Hæfni í mannlegum samskiptum
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Jóhann Ragnar Benediktsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eskifjarðar í síma 862 0363 og í gegnum netfangið johannrb@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2019.