mobile navigation trigger mobile search trigger
04.03.2021

Leikskólakennarar leikskólann Eyrarvelli í Neskaupstað

Leikskólinn Eyrarvellir auglýsir eftir leikskólakennurum. Leikskólinn er 8 deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Leikskólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

starfslýsing leikskólakennara

Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1460/847-8232 eða á halla@skolar.fjardabyggd.is  eða Sigurveig H. Dagbjartsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 477-1462 eða á sigurveighd@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2021. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér