Leikskólinn Kæribær auglýsir eftir leikskólakennara eða almennan starfsmann á deild. Um er að ræað 100% starf.
Í Kærabæ eru 48 nemendur á aldrinum 1-6 ára. Einkunnarorð skólans eru Kunnátta, kærleikur og kæti. Skólar Fjarðabyggðar vinna eftir Uppeldi til ábyrgðar. Lögð er áhersla á að starfsfólki og börnum líði vel í leik og námi.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun / eða sambærileg menntun.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Góð íslensku kunnátta
• Metnaðarfullur í starfi, hæfni og áhugi til að vinna með börnum og í hóp.
• Hugmyndaríkur, jákvæður, sveigjanlegur og áhugasemi í vinnu.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Stundvísi.
• Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í leikskólastarfi.
Umsóknarfrestur: 15.des. 2019 og geta hafið störf 6. janúar 2020. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því smella hér
Nánari upplýsingar um starfið gefur Ásta Eggertsdóttir leikskólastýra í síma 4759055 eða á netfang, astae@skolar.fjardabyggd.is
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.