Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf þjónustufulltrúa á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði. Um er að ræða ráðningu í tímabundið fullt starf til loka desember 2019 með möguleika á framtíðarráðningu.
Helstu verkefni:
• Símasvörun fyrir bæjarskrifstofur og stofnanir.
• Tekur á móti viðskiptavinum og gestum.
• Móttaka ábendinga, pósts og flokkun erinda og skráning.
• Veitir ýmsa stoðþjónustu innan bæjarskrifstofu eins og við undirbúning funda og viðburða.
• Annast innkaup og umsjón með rekstrarvörum og minniháttar skrifstofubúnaði.
• Annast skipulag mötuneytis og umsjón með skipulagningu þess í fjarveru matráðs.
• Annast og aðstoðar við undirbúning móttöku gesta, almennra funda og sér um innkaup veitinga ef þess er óskað.
• Aðstoðar við verkefni sem tengjast þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
Hæfniskröfur:
• Framhaldsskólamenntun er æskileg.
• Reynsla af þjónustu- og almennum skrifstofustörfum.
• Reynsla og þekking á notkun upplýsingatæknikerfa.
• Góð íslenska og íslensk ritfærni, önnur tungumálakunnátta kostur.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
• Samstarfs- og samskiptahæfileikar.
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði.
Starfið gegnir þýðingarmiklu hlutverki í að veita íbúum góða og skilvirka þjónustu. Rík áhersla er lögð á gott viðmót og þjónustulund.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma 470 9062 eða á netfanginu gunnar.jonsson@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2019 og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf strax.