mobile navigation trigger mobile search trigger
30.08.2019

Starfsmaður Íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar

Laust er til umsóknar 100% staða framtíðar starfsmanns við Íþróttamiðstöð Norðfjarðar.
Í starfinu felst m.a.:
  • Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
  • Eftirlit og gæsla með gestum íþróttahús og líkamsræktarstöðvar
  • Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við börn og aðra gesti
  • Þrif
Hæfniskröfur:
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu við íþróttamiðstöðvar
  • Reynsla af vinnu með börnum og öðrum þjónustustörfum æskileg
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og skipulagshæfni


Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfslýsing sundlaugarvarðar við Íþróttamiðstöð Norðfjarðar 2019.pdf
 
Frekari upplýsingar um starfið gefur Sigurjón Egilsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar í síma 863 7080 og í gegnum netfangið sigurjon.egilsson@fjardabyggd.is
 
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2019. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér