Sumarstörf í framkvæmda- og þjónustumiðstöð
Áhaldahús Fjarðabyggðar auglýsa laust til umsóknar örfá sumarsörf. Störfin felast í hinum ýmsu störfum sem tengjast þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar s.s. viðhald gatna, veitum Fjarðabyggðar og höfnum.
Sumarstörfin eru ætluð ungu fólki 20 ára og eldra. Umsækjendur þurfa að vera stundvísir, samviskusamir, búa yfir almennri kurteisi og hæfni í samskiptum. Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni eru miklir kostir.
Hæfniskröfur:
• 20 ára og eldri
• Bílpróf
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Rík Þjónustulund
Helstu verkefni:
• Starf við hin ýmsu störf tengdum þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
• Viðhald gatna.
• Viðhald göngubrúa.
• Verkefni tengd bæjarhátíðum, þjónusta við íbúa.
• Verkefni tengd veitum Fjarðabyggðar.
• Verkefni tengd höfnum Fjarðabyggðar.
Starfslýsing - verkamaður II.pdf
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ari Sigursteinsson, bæjarverkstjóri Fjarðabyggðar ari.sigursteinsson@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér