Fjarðabyggð auglýsir laust starf vélamanns í þjónustu og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar. Vélamaður annast vinnu á tækjum og vélum þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar eftir því sem réttindi vélamanns segja til um og daglegt viðhald. Auk þess sinnir hann þjónusta við aðrar stofnanir bæjarins skv. fyrirmælum yfirmanns.
Helstu verkefni:
- Vinnur á tækjum og vélum þjónustumiðstöðvar.
- Annast viðhald tækja, vinnuvéla og bíla í samráði við bæjarverkstjóra.
- Leysir af aðra stjórnendur vinnuvéla í orlofi og forföllum.
- Vinnur að verkum, bæði úti og inni sem tengjast helstu framkvæmdum svo sem gatnagerð, merkingu gatna, lagnavinnu, viðhaldi og rekstri veitna, fegrun umhverfis og viðhaldi á eigum og opnum svæðum bæjarfélagsins.
Menntun og reynsla:
- Meirapróf og vinnuvélapróf
- Reynsla af viðhaldi véla, búnaðar og mannvirkja
- Reynsla af stjórnun
- Almenn tölvukunnátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ari Sigursteinsson, verkstjóri ari.sigursteinsson@fjardabyggd.is síma 470 9000. Umsóknarfrestur er til og með 9. desember
Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því smella hér.