Vinnuskólinn verður starfandi frá 03. júní – 16. ágúst.
Vinnufyrirkomulag: Störf tengd umhverfismálum á vegum þjónustu og framkvæmda miðstöðvar - 85% vinna og fræðsla
15%.
14 ára (árg. 2005) getur valið um vinnu í fimm vikur - 4 vinnuvikur og 1 fræðsluvika á vegum sjávarútvegsskólans.
Vinnutími er frá 08:00- 12:00
15 ára (árg. 2004) getur valið um vinnu í sex vikur - 5 vinnuvikur. Boðið verður uppá fræðslu í Samfélag og sköpun.
Vinnutími er frá 08:00- 12:00
16 ára ( árg 2003) sækja um 8 vikna sumarstarf sem sumarstarfsmenn hér inn á ráðningarvef Fjarðabyggðar
Vinnutími er frá 8:00
Unglingar sem eru með lögheimili í sveitarfélaginu hafa öll rétt til þátttöku í vinnuskólanum.
Unglingar með lögheimili utan sveitarfélagsins þurfa að sækja sérstaklega umleyfi til þátttöku og verða umsóknir þeirra teknar til
greina út frá fjölda umsókna.
Næsti yfirmaður Vinnuskólans er garðyrkjustjóri.
Frekari upplýsingar um Vinnuskólann veitir Helga Björk Einarsdóttir,
garðyrkjustjóri, helga.b.einarsdottir@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til 3. júní 2019 - sótt er um á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér