Sorphirða og Endurvinnsla
Fjarðabyggð er vel á veg komið í umhverfismálum og gaman hefur verið að sjá hversu mjög ásýnd bæjarkjarnanna hefur breyst til hins betra á undanförnum árum. Aukin áhersla hefur verið á flokkun úrgangs á undaförnum árum. Árið 2010 var Græna tunnan tekinn í notkun og í hana er safnað öllum pappír, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (s.s. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur sem til falla. Árið 2018 bættist Brúna tunnan við en í hana á safna öllum lífrænum úrgangi sem til fellur á heimilum í Fjarðabyggð.
Þriggja tunnu kerfi
Frá og með janúar 2018 hefur verið þriggja tunnu sorptunnukerfi í Fjarðabyggð en þá bættist brúna tunnan við hinar tvær sem fyrir voru. Gráa-, Græna- og Brúna tunnan verða allar losaðar á þriggja vikna fresti.
Hér má nálgast handbók vegna innleiðingar Brúnu tunnunar: Við hugsum áður en við hendum

Brúna tunnan
Brúna tunnan er fyrir lífrænan úrgang. Í hana mega fara allir matarafgangar sem og annar lífrænn úrgangur sem til fellur á heimilum. Dæmi um lífrænan úrgang: Afskurður af ávöxtum og grænmeti, kjöt- og fiskafgangar, brauðmeti, kaffikorgur og tepokar.
Hægt er nálagst flokkunartöflu fyrir Brúnu tunnuna hér: Flokkunartafla - Brúna tunnan.

Græna tunnan
Grænan tunnan er fyrir endurvinnanlegan heimilsúrgang. Í tunnuna má setja allan pappír heimilisins, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (t.d. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur. Mikilvægt er að hreinsa allar umbúðir vel og skola fernur áður en þær fara í tunnuna.
Hægt er að nálagst flokkunartöflu fyrir Grænu tunnuna hér: Flokkunartafla - Græna tunnan

Gráa tunnan
Gráa tunnan er fyrir allan úrgang sem ekki flokkast í skilgreinadn emdurvinnsluferil. Dæmi: Gler, bleyjur, frauðplast og stór bein
Sorphirðudagatal 2021
Móttöku- og söfnunarstöðvar í Fjarðabyggð
Móttökustöð Fjarðabyggðar er á Reyðarfirði. Þar er tekið á móti stærri förmum af úrgangi frá fyrirtækjum og einstaklingum. Allur úrgangur er fluttur á móttökustöð til vinnslu, þar sem hann flokkaður og ýmist fluttur til urðunar eða sendur til endurvinnslu. Íslenska Gámafélagið sér um rekstur móttökustöðvar og sér um að pressa pappa og flytja hráefni til endurvinnslu beint frá Reyðarfirði.
Á öðrum stöðum eru söfnunarstöðvar.
Opnunartími móttöku- og söfnunarstöðva
mán | þrið | mið | fim | fös | lau | |||
Norðfjörður | Naustahvammi 51 | 477 1302 | 15:00-18:00 | 15:00-18:00 | 14:00-18:00 | 12:30-17:00 | ||
Eskifjörður | Við Strandgötu | 476 1665 | 15:00-18:00 | 15:00-18:00 | 14:00-18:00 | 12:30-17:00 | ||
Reyðarfjörður | Hjallanesi 8 | 474 1555 | 14:00-18:00 | 14:00-18:00 | 14:00-18:00 | 14:00-18:00 | 14:00-18:00 | 12:30-17:00 |
Fáskrúðsfjörður | Nesvegi 13 | 475 1144 | 15:00-18:00 | 15:00-18:00 | 14:00-18:00 | 12:30-17:00 | ||
Stöðvarfjörður | Byrgisnesi | 475 8814 | 14:00-18:00 | 12:30-17:00 | ||||
Breiðdalur | Þórðarhvammi |
Fatagámar
Norðfjörður: Við afgreiðslustöð Flytjanda Egilsbraut 6.
Reyðarfjörður: Við söfnunarstöðina á Hjallanesi 8.
Eskifjörður: Við þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar Strandgötu 6.
Fáskrúðsfjöður: Við starfstöð Rauða Krossins Grímseyri 9.
Stöðvarfjörður: Við Rauða kross búðina Fjarðarbraut 46.
Breiðdalsvík: Við áhaldahús Selnesi 1.
Nytjahlutir
Við Egilsbraut 8 í Neskaupstað er hátt hús staðsett fyrir neðan kirkjuna sem heitir Steinninn. Steinninn nytjamarkaður er þar til húsa, í kjallaranum. Hægt er að fara þangað með nytjahluti á opnunartíma markaðarins.
Þá rekur Rauði kross Íslands á Austurlandi verslanir fyrir notuð föt eða nytjahluti á Eskifirði og Stöðvarfirði
Garðaúrgangur
Íbúar geta losað sig við garðaúrgang á eftirfarandi stöðum. Við viljum benda íbúum á að tæma garðaúrgang úr pokum við losun. Plast getur tekið allt að 100 ár að brotna niður í náttúrunni.
Norðfjörður: Gámur við þjónustumiðstöð.
Reyðarfjörður: Losað við Teigagerði.
Eskifjörður: Losað neðan við bæinn Eskifjörð.
Fáskrúðsfjörður: Losað í gryfju við hlið söfnunarstöðvar.
Stöðvarfjörður: Losað við Byrgisnes.
Breiðdalsvík: Losað við Þórðarhvamm.