mobile navigation trigger mobile search trigger
15.06.2021

17. júní í Fjarðabyggð

Klukkan 11:00 - 22:00

Njóttu þjóðhátíðardagsins á Eskifirði!

Fjarðabyggð heldur 17. júní hátíðlegan í ár í samstarfi við Ungmennafélagið Austra á Eskifirði. Glæsileg dagskrá verður í boði þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

17. júní í Fjarðabyggð

Dagskrá:

08:00 – Fánar dregnir að húni. Íbúar í Fjarðabyggð eru hvattir til að flagga í tilefni dagsins.

10:00 – 18:00 – Opið í Sundlaug Eskifjarðar – Frítt inn

11:00 – Víðavangshlaup hefst við sundlaugina

Tvær vegalengdir - leikskólahlaup og grunnskólahlaup. Fólk er beðið að mæta tímanlega.

13:00 – 17:00 – Opið á Sjóminjasafni Austurlands á Eskifirði. Frítt inn

13:00 - Skrúðganga frá Valhöll á hátíðarsvæðið við Eskjutún.

13:15 - Hátíðardagskrá hefst á Eskju túni – Andri Bergmann stýrir dagskránni

  • Bæjarstjóri flytur ávarp
  • Fjallkonan flytur ávarp
  • Veitingasala á vegum Austra
  • Skapandi sumarstörf verða á staðnum
  • Hoppukastalar
  • Fjölbreytt tónlistaratriði
  • Þrautabraut

17:00 -  Dagskrárlok

13:00 – 17:00 Opið í Sjóminjasafni Austurlands á Eskfirði – Frítt inn

13:00 – 16:00 Ljósmyndasýningin „Draugahundur“ í Gamla barnaskólanum

20:00 -  Tónleikar með Siggu Beinteins og Grétari Örvars í Tónlistarmiðstöðinni 

Ekki verður boðið upp á sætaferðir úr byggðakjörnum Fjarðabyggðar á hátíðina eins og verið hefur undanfarinn ár. 

Ef veður eða aðstæður verða ekki hagfeldar mun hátíðardagskráin færast inn í Valhöll. Fylgist með upplýsingum um það hér á heimasíðunni og á Facebook síðu Fjarðabyggðar.

Fleiri myndir:
17. júní í Fjarðabyggð

Frétta og viðburðayfirlit