Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsmanni í í búsetuþjónustu á Reyðarfirði.Um er að ræða þjónustu í vaktavinnu á heimilum fatlaðs fólks. Starfshlutfall er 60% og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
- Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu, Anna H. Árnadóttir – anna.h.arnadottir@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2020.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.