mobile navigation trigger mobile search trigger
14.03.2019

Auglýsing um styrki vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs og Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar vekja athygli á rétti fatlaðs fólks til að sækja um styrki til námskostnaðar og til verkfæra- og tækjakaupa.

Samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:

  1. Styrki til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
  2. Styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.

Umsóknir skulu berast til Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs eða til Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, á eyðublaði sem hægt er að finna á heimasíðu  Fljótsdalshéraðs.

Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk.

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs                    Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar

Lyngási 12                                                              Hafnargötu 2

700 Egilsstöðum                                                 730 Reyðarfirði

sími 470 0700                                                      sími 470 9000

                                         

 

Frétta og viðburðayfirlit