mobile navigation trigger mobile search trigger

Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð 2021

19.06.2021 - 25.06.2021

Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð verður haldinn dagana 19. - 26. júní 2021. Gönguvikan er með stærstu útivistarviðburðum ársins. Í boði eru á fimmta tug viðburða þá viku, bæði gönguferðir og skemmtanir, en vikan er ekki síður skilgreind sem gleðivika. 

Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð 2021

Áhersla er lögð á fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi, s.s. fjölskyldugöngur, sögugöngur og göngur fyrir alvöru fjallagarpa og á kvöldin er brugðið á leik með kvöldvökum og sjóræningjapartíum.

Vikan stendur frá laugardegi til laugardags og fyllir því átta heila daga af fjölbreyttum viðburðum og frábærri útivist. Skipuleggjendur eru Ferðafélag Fjarðamanna í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.
Gönguleiðarkorti og dagskrá er dreift um allt Austurland.

Nánari upplýsingar má finna á Facebookarsíðu gönguvikunnar með því að smella hér.

Frétta og viðburðayfirlit