Fimmtudagur 27. júní.
Gönguvikan "Á fætur í Fjarðabyggð" - Dagur 6
27.06.2019
Kl. 10:00.
Sjónhnjúkur 1192m (eitt af fjöllunum fimm í Gönguvikunni).
Mæting við afleggjarann að Stuðlum innan við bæinn Sléttu í Reyðarfirði.
Gengið inn Hjálmadal og Stuðlaheiði að tindinum.
Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694.
Verð kr. 2.000.
Kl. 18:00.
Fjölskylduganga um fólkvandinn/friðlandið Hólmanesi.
Mæting á útsýnis staðnum upp á Hólmahálsi.
Gengið niður að Urðaskarði og þaðan hringinn út fyrir Hólmaborg, Sauðahellir, Ögmundargat, Gránubás og fl. skoðað á leiðinni.
Stoppað á Borgarsandi, þar sem kvöldvakan verður, áður en gengið er upp á Hólmahálsinn þar sem bílarnir bíða.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson, 698 6980.
Verð kr. 1.000 fyrir fullorðna.
Kl. 20:00
Kvöldvaka á Borgarsandi.
Lifandi tónlist og veitingar í boði Landsbankans.
Hægt er að koma siglandi á kvöldvökuna ef veður leyfir.