Laugadagur 29. júní.
Gönguvikan "Á fætur í Fjarðabyggð" - Dagur 8
29.06.2019
Kl. 10:00
Karlskáli - Sauðatindur - Karlstaðir - Vöðlavík ca. 17-20 km.
Mæting á Mjóeyri við Eskifjörð kl 9:00 þar sem sameinast er í bíla.
Gengið frá eyðibýlinu Karlsskála og út með Karlskálabrúnum. Þaðan um Karlskálaskarð og Svartafjall að Auuðatindi. Gengið yfir tindinn og svo Krossanesmúla að eyðibýlinu Kirkjubóli í Vöðlavík. Þaðan er hægt að fá bílfar að Karlstöðum skála Ferðafélags fjarðamanna í Vöðlavík.
Leiðsögumaður: Sævar Guðjónsson, 698 6980.
Verð kr. 3.000.
Kl 13:00.
Krossanes ca. 10 km.
Mæting við eyðibýlið Kirkjuból í sunnanverðri Vöðlavík. (4x4).
Gengið frá Kirkjubóli meðfram Kirkjubólshöfn þaðan um Kirkjubólsskriður og út á Krossanes. Minja um byggðina á nesinu skoðaðar. Ganga fyrir alla fjölskylduna.
Veitingar á Karlstöðum í lok ferðar.
Fararstjóri: Elís Jónsson, 844 8570.
Verð kr. 1.000.
Kl. 20:00.
Lokakvöldvaka á Mjóeyri.
Útisvið, lifandi tónlist, varðeldur, veittar viðurkenningar Gönguvikunnar og fleira.
Aðgangur ókeypis í boði Gönguvikunnar, Eskju og Laxa.
kl. 22:00 - 01:00
Sjóhúspartí á Randulffs-sjóhúsi.
Vignir Snær og Þórunn Clausen sjá um fjörið.
18 ára aldurstakmark. Frítt inn í boði Randulffs-sjóhúss.