Hefð er komin á samvinnu Rauða kross deilda í Fjarðabyggð, Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefndar Kvenfélagsins Nönnu, Kvenfélags Reyðarfjarðar, Kaþólsku kirkjunnar og Þjóðkirkjunnar við að styrkja einstaklinga og fjölskyldur í Fjarðabyggð sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin. Þá hefur styrkjum í sjóðinn einnig verið safnað frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum.
Hægt er að styrkja sjóðinn með því að leggja inn á reikning 569-14-400458 kt. 520169-4079, en söfnunarreikningurinn er í nafni Eskifjarðarkirkju og allt fé sem safnast rennur óskipt til einstaklinga sem eru í þörf fyrir aðstoð. Sjóðurinn vill koma á framfæri kærum þökkum til þeirra sem hafa styrkt hann síðust ár.
Tekið er á móti umsóknum í sjóðinn í gegnum netföngin erla.jo@kirkjan.is eða sigridur.inga@fjardabyggd.is til og með 8. desember 2020.
Nánari upplýsingar veita Erla Jónsdóttir og Sigríður Inga Björnsdóttir í ofangreindum netföngum.