mobile navigation trigger mobile search trigger
03.04.2020

Kennarastöður við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

Kennarastöður við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á næsta skólaári

Leitað er að kennurum sem er reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans. Um almenna kennslu er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.

Starfslýsing grunnskólakennari

Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Eggert Ólafsson skólastjóri jonas@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 897 1962

Staðan er laus frá 1. ágúst 2020. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 20. apríl.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit